SKILMÁLAR

BOHEMIA netverslun er rekin af Polák ehf. (500323-0940)
Bankastræti 11, 101 Reykjavík
Fjórða hæð.
S. 788-1877
[email protected]

GREIÐSLULEIÐIR

Við tökum við millifærslum og greiðslu með debet- eða kreditkorti í gegnum greiðslusíðu Salt Pay.

Athugið að ef valið er að greiða með millifærslu þá þarf greiðsla að berast innan 12 klst. annars dettur pöntunin niður.

AFHENDING

Þér býðst að fá pakkann þinn með Dropp eða Póstinum. Burðargjöld Póstsins reiknast sjálfkrafa í greiðsluferli en við höfum fast gjald fyrir Dropp sendingar.

Við sendum allar vörur með Dropp eða Póstinum fyrir 990 kr. en hægt er að fá sent frítt í næsta póstbox eða á næsta pósthús allar pantanir yfir 9000 kr. Einnig er hægt að fá heimsendingu fyrir 1300 kr.

VÖRUSKIL

Það skiptir okkur miklu máli að viðskiptavinir okkar séu ánægðir og því er veittur 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Við endurgreiðum vöru innan við 10 daga frá vöruskilum en flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

GÖLLUÐ VARA

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

FRIÐHELGI VIÐSKIPTAVINA

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum seldar eða gefnar til þriðja aðila en hafa þarf í huga að við kaupum þjónustu hjá fagaðila til að framfylgja öllum pöntunum á Bohemia.is en sá þriðji aðili er bundinn trúnaði.
Privacy policy All personal information will be strictly confidential and will not be given or sold to a third party.

LÖG & VARNARÞING

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjanes.

Bohemia áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.